Leikjanámskeið 2018

Frjálsíþróttadeild Dímonar stendur fyrir leikjanámskeiðum á Hvolsvelli í sumar. 
Námskeiðin verða eina viku í senn, fyrsta námskeiðið hefst mánudaginn 28.maí.

Námskeið I er frá 28. maí – 1. júní 8.500 krónur

Námskeið II er frá 4. júní – 8. júní 8.500 krónur

Námskeið III er frá 11. júní – 15. júní 8.500 krónur

Námskeið IV 18. júní - 22. júní 8.500 krónur. Skátar frá USA í heimsókn.

Námskeið V 5. júní – 29. júní 8.500 krónur (ef næg þátttaka fæst).

Námskeið VI 2. Júlí – 6. júlí 8.500 krónur (ef næg þátttaka fæst).

Þátttökugjald leggist inn á reikning frjálsíþróttadeildarinnar: 
Númer 0182 – 05 – 846 kennitala 510697-2279 
Vinsamlegast setjið nafn barns til skýringar á greiðslu. Veittur er 20 % systkinaafsláttur af 8.500 krónunum á annað systkini. 
Námskeiðið er frá kl. 9 – 16.

Hægt er að fá gæslu frá kl. 8 - 9 og 16 -17 gegn 3.000 kr. greiðslu á viku þ.e. ef næg þátttaka fæst. 
Áður en hvert námskeið hefst þarf greiðsla að hafa borist inn á reikning deildarinnar.

Námskeiðin eru fyrir börn úr 1. – 4. bekk og 5. – 6. bekk. Hópunum verður skipt eftir aldri og stefnt er að því að allir iðkendur fái verkefni við hæfi.
Börnin þurfa að koma klædd eftir veðri og með nesti fyrir daginn. Auk þess að að koma með sundföt alla daga.

Umsjónarmenn verða Ólafur Elí ásamt leiðbeinendum úr vinnuskólanum.

Skráningar fara fram á netfanginu olieli@simnet.is Þar þarf að koma fram nafn og kennitala barns. Símar foreldra og netföng. Ásamt því ef barnið er haldið einhverju ofnæmi, taki inn lyf eða eitthvað annað sem umsjónamenn þurfa að vita um barnið.

Dagskrá verður birt á facebooksíðu Íþróttafélagsins Dímon hverja viku í senn.

Myndir: