Maí  2012
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
   
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31  

Getraunanúmer Dímonar er 859

Heimsóknir:

Leikjanámskeið í sumar

Verið er að leggja lokahönd á dagskrá leikjanámskeiðs sem Frjálsíþróttadeildin ásamt Rangarþingi Eystra sjá um í sumar. Fréttir af því koma hér inn um leið og dagsskráin er klár.

Aldursflokkamót í sundi á Hvolsvelli

Aldursflokkamót í sundi var haldið í Sundlauginni á Hvolsvelli laugardaginn 28.apríl. Margt var um manninn þrátt fyrir rigninu og rok. Tæplega  50 keppendur tóku þátt í mótinu. Fínn árangur hjá Dímonakrökkum  þau enduðu í 3.sæti í heildastigakeppninni. Grillaðar voru pyslur handa öllum keppendum og foreldrum eftir mótið í boði SS . Fleiri myndir eru komar í myndagallery sunddeildar.

Hér má sjá úrslit mótsins, http://hsk.is/skjol/Aldursflokkamót%20HSK%20í%20sund1%202012_ursl.pdf

Keppendur ásamt þjálfara sínum

Frjálsíþróttaæfingar á Hellu í sumar

Frjálsíþróttadeildir Dímonar, Heklu og Garps  ætla að standa fyrir samæfingum í frjálsum  í sumar fyrir 1.-8. bekk. Æfingarnar verða á Frjálsíþróttavellinum á Hellu á þriðjudögum frá kl. 17:00-18:30. 1. æfing verður haldin þriðjudaginn 22. maí. Þjálfari verður Rúnar Hjálmarsson, sem er að m.a. að þjálfa frjálsar í Þorlákshöfn.  Foreldrar þurfa að sjá um að koma sínum börnum til og frá Hellu. Kjörið er fyrir foreldra  að tala sig saman um keyrslu til nýta ferðir sem best. Þáttakendur vinsamlegast sendið skráningar í tölvupósti á bensi@hvolsvollur.is eða olieli@simnet.is fyrir 20.maí.

Frjálsiþróttadeild Dímonar

Punktamót Dímonar í borðtennis

Hið árlega punktamót Dímonar var haldið á sumardaginn fyrsta.

Alls tóku 5 félög þátt í mótinu.

Aðstaða til borðtennisiðkunnar er til fyrirmyndar á Hvolsvelli og var umgjörð mótsins hin veglegasta

Að móti loknu notfærðu keppendur sér frábæru sundaðstöðuna og skelltu sér í sund og í heita pottinn

Inni á myndasafni eru myndir af mótinu

Strákarnir í 5. fl.kk. urðu íslandsmeistarar í blaki

Þormar Elvarsson, Benedikt Óskar Benediktsson, Jón Pétur Þorvaldsson og Óli Jón Ólason urðu Íslandsmeistarar í blaki  nú á dögunum.

Srákarnir stóðu sig mjög vel, þeir unnu alla sína leiki og töpuðu engri hrynu.

Íslandsmeistarar í blaki

Strákarnir með bikarinn

Til hamingju strákar

Það eru fleiri myndir í myndasafninu.

Myndir frá frjálsíþróttamóti Dímonar og Garps

Frjálsíþróttamótið tókst vel og skemmtu krakkarnir sér konunglega. Mótið endaði á pylsu (pulsu) partýi og skildu allir sátir og saddir eftir daginn.

Hér eru myndir frá mótinu en fleiri myndir má finna í myndasafninu “frjálsíþróttadeild”

Frjálsíþr. mót 3-4-12

Flottir krakkar

Íþróttagarpar tilbúnir í slaginn

Íþróttagarpar tilbúnir í slaginn

Fjölþrautamót í íþróttamiðstöðinni Hvolsvelli 3. apríl

Fjölþrautamót Dímonar og Garps verður haldið þriðjudaginn 03. apríl ´12 og hefst kl. 16.00.

Keppt verður í aldursflokkum.  Viðurkenningaskjöl veitt fyrir árangur.

Öllum krökkum í Rangárþingi í þessum aldursflokkum er boðið til keppni.

Keppnisgreinar:

10 ára og yngri 11 – 12 ára 13         14 ára 15                    16 ára

Spretthlaup              Spretthlaup            Spretthlaup            Spretthlaup

Langstökk án atr.     Langstökk án atr.   Langstökk án atr.  Langstökk án atr.

Skutlukast                   Kúluvarp                  Kúluvarp                Kúluvarp

Hástökk                        Hástökk                    Hástökk

Boðið verður uppá veitingar fyrir keppendur í mótslok.

Styrktaraðili mótsins er SS.

Krakkar í Rangárþingi, fjölmennum og skemmtum okkur með foreldrum og vinum.

Kveðja frá Frjálsíþróttadeildum Dímonar og Garps.

Aðalfundur Glímuráðs HSK 2012

Aðalfundur Glímuráðs Skarphéðins var haldinn í Selinu 21. febrúar 2012 og hófst hann kl. 20:40.

Fundarmenn: Kristinn Guðnason, Ólafur Oddur Sigurðsson, Fanney Ólafsdóttir, Jón M. Ívarsson, Stefán Geirsson, Ólafur Elí Magnússon, Baldur Gauti Tryggvason, Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir, Engilbert Olgeirsson, Kjartan Lárusson.

Dagskrá

1.         Setning aðalfundar.

2.         Kosning fundarstjóra og ritara.

3.         Kosning kjörbréfanefndar og alsherjarnefndar.

4.         Skýrsla fráfarandi stjórnar.

5.         Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar ásamt fjárhagsáætlun næsta árs.  Einnig árstillög félaga ef til kemur.

6.         Tillögur og málefni sem borist hafa tekin til meðferðar.

7.         Kosning formanns ráðsins.

8.         Kosning ritara sem jafnframt er varaformaður

9.         Kosning gjaldkera.

10.       Kosning tveggja varamanna í stjórn og tveggja skoðunarmanna.

11.       Önnur mál.

12.       Fundarslit.

1.         Setning aðalfundar.

Kristinn Guðnason setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Hann flutti kveðju Helga Kjartanssonar sem átti ekki heimangengt.

2.         Kosning fundarstjóra og ritara.

Kristinn stakk upp á Jón M. Ívarssyni sem fundarstjóra og Stefáni Geirssyni sem fundarritara. Samþykkt samhljóða.

3.         Kosning kjörbréfanefndar og allsherjarnefndar.

Kjartan Lárusson og Baldur Gauti Tryggvason kosnir í kjörbréfanefnd. Allir fundarmenn skipaðir í alsherjarnefnd.

Álit kjörbréfanefndar:

Kjartan flutti álit nefndarinnar. Fulltrúar frá sex félögum hafa skilað kjörbréfum sem hafa að telja tíu fulltrúa.

Íf. Dímon. Á rétt á tveimur fulltrúum. Mættur Ólafur Elí Magnússon.

Íf. Garpur: Á rétt á þremur fulltrúum. Mættir Kristinn Guðnason og Engilbert Olgeirsson.

Umf. Baldur: Á rétt á einum fulltrúa. Mættur Baldur Gauti Tryggvason.

Umf. Laugdæla: Á rétt á tveimur fulltrúum. Mættir Kjartan Lárusson og Ólafur Oddur Sigurðsson.

Umf. Samhygð: Á rétt á tveimur fulltrúum. Mættir Stefán Geirsson og Jón M. Ívarsson.

Umf. Vaka: Á rétt á tveimur fulltrúum. Mættir Fanney Ólafsdóttir og Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir.

Kjörbréf samþykkt samhljóða.

Halda áfram að lesa Aðalfundur Glímuráðs HSK 2012

Parkour námskeið 25 – 27 feb.

Parkour námskeið verður í Íþróttamiðstöðinni um helgina.

Aldurstakmark verður 9-14 ára

Föstudagur 25.02. æfing 18:00 – 19:30

Laugardagur 26.02. æfing 11:00 – 12:30 og 14:00 – 15:30

Sunnudagur 27.02. æfing 11:00 – 13:00.

Skráning fyrir kl. 21.00 á fimmtudag

Stjórn fimleikadeildar

Ingibjörg Erlingdsdóttir 845-0015

Guri Hilstad Ólason  861-0092

Aðalfundur Dímonar

Viðurkenningar til íþróttamanna, veittar á aðalfundi 12.2.2012:

Viðurkenningar fyrir Borðtennis  2011 IMG_0681

Fyrir góða ástundun og framfarir í borðtennis hlýtur

Jakob Þórir Hansen  viðurkenningu borðtennisdeildar Dímonar fyrir árið 2011  Jakob Þórir hefur verið duglegur að  taka  þátt í mótum og staðið sig einstaklega vel.    Til hamingju Jakob Þórir

Borðtenniskona Dímonar fyrir árið 2011 er Bergrún Linda Björgvinsdóttir.   Bergrún Linda er orðin ein af sterkustu borðtenniskonum á Íslandi.  Bergrún er í unglingalandsliðshópi og æfir einnig með A- landsliðshópi kvenna.  Bergrún hefur tekið þátt í flestum mótum á vegum borðtennissambands Íslands. Hún er þrefaldur Íslandsmeistari í sínum aldursflokki.  Til hamingju Bergrún Linda.

Glíma -    Viðurkenningar 2011IMG_0692

Frá glímudeild koma fyrst tvær verðlaunaveitingar en þær eru í stúlknaflokki 11-12 ára fyrir árið 2011 fyrir þær 

Belindu Birkisdóttur og Sif Jónsdóttur Báðar hafa þær verið mjög duglegar við æfingar og nánast ósigrandi í öllum þeim mótum sem þær hafa tekið þátt í.  Helstu mót sem þær hafa tekið þátt í eru Grunnskólamót HSK,  Héraðsmót HSK, Fjórðungsglíma HSK,  Grunnskólamót Íslands á Reyðarfyrði og Meistaramót Íslands 15 ára og yngri haldið á Hvolsvelli 29. okt. Sveitaglíma Íslands haldið á Hvolsvelli 29. okt.   Til hamingju  Belinda og Sif.

 Frá glímudeild kemur svo verðlaunaveiting í stúlknaflokki 13 – 14 ára   fyrir árið 2011.  Þau hlýtur  Kristín Lilja Sigurjónsdóttir.  Kristín hefur verið dugleg að taka þátt í glímumótum og staðið sig mjög vel.  Helstu mót eru Grunnskólamót HSK , Héraðsmót HSK,  og Meistaramót Íslands 15 ára og yngri haldið á Hvolsvelli 29. okt. Sveitaglíma Íslands haldið á Hvolsvelli 29. okt.   Til hamingju Kristín Lilja.

Frá glímudeild kemur því næst verðlaunaveiting fyrir efnilegasta glímumann Dímonar fyrir  árið 2011 en það er  Sindri Ingvarsson.  Hann hefur verið duglegur að æfa glímuna. Sindri varð Íslandsmeistari í sínum flokki á Meistaramóti Íslands sem haldið var á Hvolsvelli þann 29. okt. síðastliðinn Einnig var Sindri í sigursveit HSK á Sveitaglímu Íslands 29. okt. s.l.     Til hamingju Sindri Ingvarsson. 

Viðurkenningar fyrir Fimleika 2011IMG_0686

Selma Friðriksdóttir stundar fimleika af áhuga og dugnaði og hefur náð mjög góðum tökum á íþróttinni. Selma mætir mjög vel á æfingar og leggur mikinn metnað í þær.

Inga Rós Sveinsdóttir hefur náð góðum tökum á íþróttinni. Hún nætir vel og er áhuga og samviskusöm. Hún leggur sig fram við æfingarnar og hefur náð góðum árangri í íþróttinni.

Viðurkenningar fyrir Frjálsaríþróttir 2011IMG_0688

Íþróttamaður ársins 2011  í flokki 11-14 ára er Almar Óli Atlason

Almar Óli tók þátt í HSK  mótum, Meistaramóti Íslands 11-14 ára og mótum á vegur Dímonar, hann bætti sig mikið á árinu meðal annars um rúma sekundi í 60 metra hlaupi og hálfan meter í langstökki, hans besti árangur var 3,89 metrar í langstökki sem gefa 825 stig. Til hamingju Almar Óli.

Íþróttamaður ársins 2011 í flokki í flokki 15-22 ára er Ástþór Hermannssn  Ástþór keppti á ungmenna- og fullorðinsmótum HSK innan og utanhúss Meistaramótum Íslands innan og utanhúss og Unglingalandsmóti UMFÍ. Hann vann fjölda verðlauna og meðal annars til bronsverðlauna í stangarstökki á MÍ 15-22 ára innanhúss. Hans besti árangur var 5,48 metrar í langstökki og gefur það 760 stig. Til hamingju Ástþór.

Íþróttamaður ársins 2011 í flokki í flokki 15-22 ára er Guðmundur Helgi Eggertsson  Guðmundur keppti á keppti á ungmenna- og fullorðinsmótum HSK innan og utanhúss Meistaramótum Íslands og Bikarkeppni FRÍ innanhúss. Hans aðalgreinar eru spretthlaup og langstökk. Hans besti árangur var 25,51 sekúnda í 200 metra hlaupi sem gefa 860 stig. Til hamingju Guðmundur Helgi.

Íþróttamaður ársins  2011 í flokki í flokki 15-22 ára er Heiðrún Huld Jónsdóttir  Heiðrún keppti á keppti á ungmenna- og fullorðinsmótum HSK innan og utanhúss Meistaramótum Íslands innanhúss og Stórmóti ÍR. Hún er mikilvæg í stigasöfnum fyrir Dímon og stendur sig alltaf með prýði. Besti árangur hennar e 28,34 í 200 metra hlaupi sem gefa 835 stig. Til hamingju Heiðrún Huld.

Íþróttamaður ársins 2011 í flokki í flokki 15-22 ára er Theodóra Jóna Guðnadóttir   Theodóra keppti á ungmenna- og fullorðinsmótum HSK innan og utanhúss, Meistaramótum Íslands innan og utanhúss, Bikarkeppni FRÍ innan og utanhúss.  Hún er mjög mikilvæg fyrir Dímon sem og HSK í æfingum og keppnum. Helsta grein hennar er stangarstökk.  Til hamingju Teodóra Jóna.

Viðurkenningar fyrir Sund 2011IMG_0689

Salka María Magnúsdóttir mætir mjög vel á sundæfingar og er mjög áhuga og samviskusamur sundiðkandi. Salka tók þátt í tveimur mótum á árinu sem voru haldin á Selfossi. Hún stóð sig með miklum sóma og hefur náð miklum framförum á árinu.

Ásta Sól Helgadóttir hefur náð mjög góðum árangri á árinu. Hún tók þátt í fjórum mótum , þremur sundmótum á Selfossi og aldursflokkamóti HSK á Hvolsvelli. Hún varð HSK meistari í skriðsundi og fékk silfur verðlaun í bringu og baksundi í flokki 11 – 12 ára. Hún sinnir sundæfingum mjög vel og hefur mikinn áhuga og metnað.

Ástríður björk Sveinsdóttir hefur náð mjög góðri færni á flestum sundaðferðum, hún gefst aldrei upp við að ná markmiðum sínum. Ástríður mætir mjög vel á æfingar, er stundvís og virk og mjög áhugasöm. Hún tók þátt í þremur mótum á árinu og varð HSK meistari í skrið og bringusundi 10 ára og yngri.

Jakob Þórir Hansen mætir mjög vel á æfingar, er stundvís og virkni góð í tímum. Hann varð HSK meistari í bringu og skriðsundi 10 ára og yngri á aldursflokkamóti HSK. Hann tók einnig þátt í tveimur öðrum mótum og stóð sig mjög vel þar.